Psalms 124

1Hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, _ skal Ísrael segja _ 2hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, þegar menn risu í móti oss, 3þá hefðu þeir gleypt oss lifandi, þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss. 4Þá hefðu vötnin streymt yfir oss, elfur gengið yfir oss, 5þá hefðu gengið yfir oss hin beljandi vötn. 6Lofaður sé Drottinn, er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð. 7Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans. Brast snaran, burt sluppum vér. 8Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar.
Copyright information for Icelandic